Tekinn með 300 grömm af kannabisi

Safnmynd.

Lögreglan í Borgarnesi lagði á laugardag hald á 300 grömm af kannabis. Lögreglan stöðvaði bifreið á leið norður í land og fundust efnin í bifreiðinni. Grunur leikur á að efnin hafi átt að fara í dreifingu og sölu norðanlands.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku