Tekinn fyrir að mæra Kim Jong Il

Kim Jong Il féll frá undir lok síðasta árs. Safnmynd.
Lögreglan í Seúl, höfuðborg Suður Kóreu, handtók í gær mann sem reyndi að setja upp altari til heiðurs Kim Jong Il, fráfallins leiðtoga Norður Kóreu. Hann verður einnig ákærður fyrir að dreifa áróðri um ágæti Norður Kóreu á netinu.
Mannréttindasamtök segja að lög, sem gera ólöglegt að hæla andstæðingum stjórnvalda í Seúl, séu í auknum mæli misnotuð til að þagga niður í andófsmönnum.
Í síðasta mánuði var suður kóreski aðgerðarsinninn Park Jeonggeun handtekinn fyrir að grínast á Twitter. Hann notaði setninguna „Lengi lifi Kim Jong Il“ og þó af samhenginu mætti ráða að það hafi verið sagt í miklu háði var hann engu að síður ákærður og á sjö ára fangelsi yfir höfði sér.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







