TBR A-landsliðið Íslandsmeistari
Fyrst birt: 05.02.2012 17:49, Síðast uppfært: 05.02.2012 19:22

TBR-A landsliðið
TBR-A landsliðið varð í dag Íslandsmeistari liða í meistaradeild í badminton en það vann alla leiki sína og því mótið örugglega. Með sigrinum tryggði liðið sér þátttökurétt á Evrópumóti félagsliða sem haldið verður í sumar.
TBR-A landsliðið skipa Atli og Helgi Jóhannessynir, Kári Gunnarsson, Magnús Ingi Helgason, Róbert Þór Henn, Karitas Ósk Ólafsdóttir, Ragna Ingólfsdóttir, Rakel Jóhannesdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir.
TBR-Öllarar urðu í öðru sæti, Félagsliðið í þriðja sæti, ÍA í fjórða sæti, Pressuliðið í fimmta sæti og BH í sjötta og síðasta sæti.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku







