Tapið 2 milljónir á mann

Fundarmenn á kynningarfundi vegna úttektar á störfum lífeyrissjóðanna.
Tap lífeyrissjóðanna vegna hrunsins jafngildir um tveimur milljónum á hvern einasta Íslending sem á réttindi í sjóðunum. Þetta samsvarar iðgjöldum meðal launamanns í tólf ár.
Í kringum 250 þúsund Íslendingar eiga réttindi í lífeyrissjóðunum. Þetta er samtala þeirra sem eru á vinnumarkaði, þeirra sem hafa greitt í sjóðina, en eru nú án atvinnu eða í skóla og þeirra sem taka lífeyri eða þiggja frá sjóðunum bætur.
Tap lífeyrissjóðanna vegna hrunsins nemur um 480 milljörðum króna. Um 250 milljarðar, eða 52% af því tapi, tengist tveimur viðskiptablokkum, Exista-veldi Bakkavararbræðra og Baugsveldi Jóns Ásgeirs Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Sé heildartapinu, 480 milljörðum, deilt á þessa 250 þúsund sem eiga inni hjá sjóðunum, kemur í ljós að tapið er að meðaltali tæpar tvær milljónir á haus. Þar af þá um milljón á mann, bara vegna viðskipta sjóðanna við útrásarblokkirnar tvær. Tvær milljónir eru dágóður skildingur, enda má ætla að meðaljóninn hafi nálægt 350 þúsundum í mánaðarlaun, fyrir skatta og skyldur. Ætla má að um fjórtán þúsund af þessu fari í lifeyrissjóð í mánuði hverjum. Það þýðir um 170 þúsund á ári. Miðað við þessa einfölduðu útreikninga, og án þess að nokkuð annað breytist, er maður í tólf ár að ná upp í tvær milljónir.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Þrír sjóðir áttu helming tapsins
Undrast hlut Exista í tapi sjóðanna





