Talsmaður Facebook viðurkennir mistök

Danska ríkisútvarpið fjallar ítarlega um mál Þórlaugar Ágústsdóttur á vef sínum en Þórlaug varð fyrir barðinu á hópi netníðinga sem stálu mynd af Facebook-síðu hennar og breyttu á ógeðfelldan hátt. Talsmaður Facebook á Norðurlöndunum viðurkennir að samskiptamiðillinn hafi gert mistök
Mynd af Þórlaugu var dreift á netinu og látið líta út fyrir að hún hefði orðið fyrir grófum barsmíðum. Textinn sem fylgdi myndinni var ekki síður ógeðfelldur; konur eru eins og gras, það þarf að slá þær reglulega. Þórlaug var í hópi þeirra sem höfðu bent á aðra Facebook-síðu þar sem konur voru niðurlægðar í máli og myndum.
Þórlaug kvartaði ítrekað undan þessum stuldi til forsvarsmanna Facebook en fékk þau svör að þetta væri allt í lagi og samrýmdist reglum Facebook. Hún dó ekki hins vegar ekki ráðalaus og fékk sínu fram og skipulagði í kjölfarið aðgerðir gegn afskiptaleysi Facebook á föstudag. Vefur DR tekur málið upp á sína arma í dag en Þórlaug er einmitt nemi við Kaupmannahafnar-háskólann og býr á Østerbro með manni sínum og þremur börnum.
Jan Fredriksen, talsmaður Facebook á Norðurlöndunum, viðurkennir í samtali við DR að þarna hafi átt sér stað mistök. Samfélagsmiðilinn geti ekki samþykkt slíkan stuld og myndbirtingar eins og þarna hafi átt sér stað. „Þetta er ekki í lagi í raunveruleikanum og þetta er ekki í lagi á Facebook,“ hefur DR eftir Fredriksen. Hann segir að allar kvartanir, sem berist Facebook, séu sendar á skrifstofu fyrirtækisins í Dublin. Þar starfi fólk sem tali ólík tungumál og Fredriksen telur líklegt að þarna hafi starfsmennirnir ekki sett málið í rétt samhengi þrátt fyrir að Þórlaug hafi kvartað fjórum sinnum undan myndinni.
Fredriksen segir aftur á móti að þarna hafi verið gerð mistök og að myndina hefði átt að fjarlægja strax. Hann segir hins vegar að notendur megi eiga von á því að það taki tíma að fjarlægja myndir, mál Þórlaugar hafi hins vegar átt að nálgast á annan hátt, það sé einstakt Hann segir þá alltaf vera að leita leiða til að bregðast við kvörtunum frá notendum sínum og gera kerfi sitt skilvirkara.
Fram kemur á vef Wired, sem einnig fjallar um mál Þórlaugar , að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem Facebook gerist sekt um seinagang í svona málum. Árið. 2011 var samfélagsmiðillinn harðlega gagnrýndur fyrir að fjarlægja ekki síðu þar sem nauðganir voru upphafnar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














