Taka umdeildan ís af markaði

Emmessís hefur ákveðið að hætta framleiðslu á Stráka- og Stelpuís og Mömmu- og Pabbaís eftir að hafa fengið mikil og hörð viðbrögð við vörunni. Markaðsstjóri Emmessíss segir ljóst að fyrirtækið hafi gert mistök við markaðssetninguna.
Emmessís setti nýlega á markað Fjölskylduís sem skiptist í fjórar tegundir, vanilluís með jarðarberjasultu handa mömmum, vanilluís með súkkulaðibitum og karamellusósu handa pöbbum, bleikan ís með tyggjókúlubragði handa stelpum og vanilluís með smartís sælgæti handa strákum.
Leifur Grímsson, markaðsstjóri Emmessíss, segir að reynslan sýni að þessar bragðtegundir séu vinsælastar hjá hverjum hópi fyrir sig og því hafi nafngiftin orðið þessi.
„Þetta er hluti af stærra konsepti hjá okkur, þetta er ímynd sem heitir Fjölskylduís, og var lagt upp með það að koma með ís handa hverjum og einum fjölskyldumeðlimi hvort sem það væri strákur eða stelpa eða mamma eða pabbi. Við gengum út frá ákveðinni reynslu um hvaða ís hentar hverjum. Þetta heitir Fjölskylduís og fékk svo vinnuheitið stelpu-, stráka- og mömmu- og pabbaís. Svo þróaðist þetta bara í að við kölluðum þetta þessum nöfnum, eftir að við tókum mikla umræðu innan fyrirtækisins um hvort þetta væri nokkuð stuðandi. Og menn héldu að nú árið 2012 myndi þessu bara vera tekið sem þetta er, léttur húmor og grín. Við ræddum það að það eru fullt af vörum á markaðnum sem eru bleikar og bláar, samanber Latibær. Þess vegna fórum við í þetta svona.“
Hneykslaður neytandi setti hins vegar mynd af stelpu- og strákaísnum á Fésbókarsíðu sína í gær og fór hún eins og eldur í sinu um netið. Heitar umræður sköpuðust og kvörtunum rigndi yfir markaðsdeild fyrirtækisins.
„Við höfum fengið mjög harkaleg viðbrögð, það eru mjög margir búnir að kvarta yfir þessu og finnst óeðlilegt að við séum að kyngreina ísinn svona og ætla öðru kyni annað en hinu. Þannig að það er ekki um annað að ræða en hætta framleiðslu á vörunni og hætta að dreifa henni.“
Aðspurður hvaða markaðsrannsóknir hafi legið að baki því að tileinka ákveðnar bragðtegundir ákveðnum einstaklingum segir Leifur að þeirra eigin reynsla hafi ráðið för.
„Það er ekki vísindaleg könnun á bak við þetta en við töldum okkur vita að vanilluís með jarðaberjasultu væri frekar borðaður af konum en mönnum. Auðvitað er ekkert meira á bak við það en það sem okkur hefur sýnst í gegnum tíðina. Og stelpuísinn er með tyggjókúlubragðefni (bubblegum), við þekkjum það sem eigum krakka, við vitum hvað stelpurnar vilja og strákarnir vilja og þess vegna var þessi leið farin. En þessi nafngift er greinilega eitthvað sem er óviðeigandi.“
Þá eru umbúðirnar í sterkum rauðum og bláum litum, rauðar umbúðir utan um bleika stelpuísinn og blár utan um strákaísinn. Leifur segir hefðina hafa ráðið för þar.
„Þetta er bara eitthvað sem byrjar strax á fæðingardeildinni og við töldum bara að þetta væri eitthvað sem væri samþykkt, eins langt og það nær. Svo er það bara foreldranna að velja, eða barnanna að ráða því hvort þau vilji vera bleik eða blá eða hvað. Og ef stelpu langar í ís með smartís þá fær hún sér bara bláan strákaís. Alveg eins og ef hana langaði í bláa húfu. Þetta átti bara að vera þannig að hugsanlega myndu einhverjir múrar brotna en, greinilega mistök hjá okkur.“
Leifur viðurkennir að markaðssetningin ýti sennilega undir staðalímyndir en það hafi ekki verið ætlunin.
„Það er búið að sýna fram á það í mörgum athugasemdum að það höfum við verið að gera en það var ekki beinlínis meiningin. Við héldum bara að það væri þarna ákveðin staðalímynd og við ætluðum ekkert endilega að vera að búa hana til eða auka á hana eða eitthvað slíkt. En greinilega var þetta það sem er í gangi og við verðum að hætta því. Þetta voru klár mistök, það er ljóst.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







