Tæp 50% ánægð með störf menntamálaráðherra

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra. Mynd: Menntamálaráðuneytið.


  • Prenta
  • Senda frétt

Nærri helmingur kjósenda er ánægður með störf menntamálaráðherra en fæstir eru ánægðir með störf umhverfisráðherra. Fleiri lýsa ánægju með störf flestra ráðherra en í byrjun síðasta árs.

Gallup hefur kannað reglulega á kjörtímabilinu hve mikil ánægja eða óánægja ríkir með störf ráðherra í ríkisstjórninni. Að þessu sinni, þegar tæpir fjórir mánuðir lifa af kjörtímabilinu eru flestir kjósendur ánægðir með störf Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Helmingur kjósenda lýsir ánægju með störf hennar.

Talsvert færri lýsa ánægju með störf annarra ráðherra. Um 30% lýsa ánægju með störf Guðbjarts Hannessonar, velferðarráðherra, Ögmundar Jónassonar, innanríkisráðherra, Steingríms J Sigfússonar, atvinnuvegaráðherra og Katrínar Júlíusdóttur, fjármálaráðherra.

Um fjórðungur er ánægður með störf Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra.

Fæstir eru ánægðir með störf Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, tæp 22%. 

Fleiri eru ánægðir með störf ráðherra nú en þegar síðast var mælt, í mars á síðasta ári, með tveimur undantekningum þó.

Þeim hefur fækkað sem eru ánægðir með störf Guðbjarts Hannessonar og Katrínar Júlíusdóttur. Fleiri eru óánægðir með störf Guðbjarts og Katrínar Jakobsdóttur en í síðustu mælingu.

Annars hefur dregið úr óánægju með störf ráðherranna. Sem fyrr ríkir mest óánægja með störf Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra - sex af hverjum tíu eru óánægðir með hennar störf.

Litlu færri eru óánægðir með störf Steingríms J Sigfússonar og Svandísar Svavarsdóttur. Heldur færri eru óánægðir með störf Össurar Skarphéðinssonar, Ögmundar Jónassonar, Guðbjarts Hannessonar og Katrínar Júlíusdóttur. Fæstir eru óánægðir með störf Katrínar Jakobsdóttur.



Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku