Svíar flytja

Stokkhólmur. Mynd:Shutterstock

Fleiri fluttu frá Svíþjóð til útlanda í fyrra en þegar fólksflutningarnir til Ameríku voru mestir árið 1887. Vinsælast var að flytja til Bandaríkjanna, Bretlands og norrænu grannríkjanna, en skyndilega virðist það einnig vera orðið vinsælt hjá Svíum að flytjast til Kína.

Þangað fluttu í fyrra 1.787 manns, 80 prósentum fleiri en árið 2010. Sænska fréttastofan TT hefur eftir sérfræðingi hjá hagstofunni í Stokkhólmi að líkleg skýring sé sú að mörg fyrirtæki hafi flutt starfsemi sína til Kína og þá fylgi starfsfólkið með. Svíþjóð var einnig vinsæll ákvörðunarstaður útlendinga í fyrra. Arabíska vorið olli því til dæmis að 50 prósentum fleiri Jemenar, Líbíumenn, Egyptar og Sýrlendingar settust að í Svíþjóð en árið 2010. Þrátt fyrir að fæðingar í fyrra hafi verið færri en árið á undan fjölgaði þjóðinni samt um hátt í 70 þúsund manns.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Evrópa, Erlent, Mannlíf

Tilkynna um bilaða upptöku