Sveitarfélögin skara að eigin köku

Verðbólga hefur ekki mælst eins mikil í 20 mánuði. Sveitarfélögin eru að leika einleik með því að hækka gjaldskrár langt úr takti við verðlagið, segir forseti ASÍ.
Forseti ASÍ gagnrýnir sveitarfélögin fyrir að vera úr takti í verðhækkunum. Verðbólga mælist 6,5% og valda hækkanir sveitarfélaga þar nokkru um.
Ársverðbólgan hefur ekki verið eins mikil síðan í maí 2010.
Verð á opinberri þjónustu hækkaði um 5,8% í janúar frá í desember. Þar af hækkuðu gjöld fyrir sorphirðu, holræsi og vatn um 12,6% og gjaldskrár fyrir rafmagn og hita um 4,4%. Þá hækkuðu opinber gjöld á áfengi, tóbak og eldsneyti. Forseti ASÍ segist hafa átt von á því að veiking krónunnar í fyrravor myndi hafa áhrif á vísitöluna alveg fram á komandi vor.
„Sex og hálft prósent er hins vegar mjög mikið. Það skýrist fyrst og fremst af því að sveitarfélögin eru nánast á alla línuna að hækka hjá sér gjaldskrár langt umfram þann takt, sem hefur verið í verðlaginu undanfarna mánuði.“ Það finnst Gylfa ekki boðlegt. Í síðustu kjarasamningum hafi verið mikill vilji til þess að allir legðu sitt af mörkum til að komast út úr vandanum.
„Þarna eru sveitarfélögin einfaldlega bara að leika þennan einleik að skara að sinni köku. Það er alveg klárt að þetta mun koma í bakið á þeim eins og okkur, vegna þess að þetta dregur úr umsvifum og dregur þá úr þeim tekjum sem sveitarfélögin hafa að meginhluta og það er útsvarið.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







