Strokupiltarnir fundust í veiðihúsi

Björgunarsveitarmenn. Safnmynd.

Unglingspiltarnir tveir, sem struku frá meðferðarheimili í Skagafirði og leitað var að í gærkvöld, fundust heilir á húfi á tólfta tímanum í gærkvöld. Piltarnir fundust rétt við bæinn Skeggstaði í Svartárdal í Húnavatnssýslu. Þeir höfðu brotist inn í veiðihús og lágu þar inni þegar þeir fundust.

Þrír piltar struku af meðferðarheimili í Skagafirði í gær og voru björgunarsveitir kallaðar út á áttunda tímanum í gærkvöld. Skömmu síðar gaf einn drengjanna sig fram. Um sextíu björgunarsveitarmenn leituðu piltanna.  Þeir voru illa búnir þegar þeir struku og hiti kominn undir frostmark. Mikil áhersla var því lögð á að finna piltana sem fyrst.

Þrír fimmtán ára piltar sem struku frá meðferðarheimilinu Háholti um sex kílómetra norður af í Varmahlíð í Skagafirði í gær eru komnir aftur þangað. Björgunarsveitir voru kallaðar út á áttunda tímanum í gærkvöld og skömmu síðar gaf einn piltanna sig fram. Um sextíu björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni

 Lögreglan á Sauðárkróki segir ekki ljóst hvernig piltarnir komust þangað, þeir hafi varla gengið alla þessa leið, en yfir Vatnsskarð er að fara. Þeir voru þrekaðir og þreyttir, enda kalt í veðri og þeir illa búnir, aðeins á peysunni. Barnaverndaryfirvöld tóku við drengjunum og síðan var farið með þá aftur í Háholt. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent

Tilkynna um bilaða upptöku