Stökk í hlutverk ljónsins

Mynd úr leikskrá Galdrakarlsins í Oz.

Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri stökk fyrirvaralaust í hlutverk ljónsins í Galdrakarlinum í Oz í miðri sýningu á því verki í Borgarleihúsinu í gær. Halldór Gylfason sem fer með hlutverk ljónsins hafði fallið niður um hlera á sviðinu sem hafði opnast fyrir mistök.

Við það meiddist hann í baki en meiðslin eru ekki alvarleg. Gera þurfti hlé á sýningunni. Halldór var sendur með sjúkrabíl í myndatöku á spítalann en Bergur dreif sig í gervi ljónsins og lauk sýningunni með sóma að sögn viðstaddra.  Tilviljun ein réð því að Bergur var í salnum á sýningunni í gær. Hann leikstýrir verkinu og þekkir það vel og gat því bjargað málunum. Ella hefðu 500 sýningargestir, flestir börn farið heim eftir hálfnaða leiksýningu.



Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku