Stöðvuðu gróðursetningu með táragasi

Fólk vildi boða til friðsamlegra mótmæla með því að gróðursetja ólívutré. Mynd: AFP

Til átaka kom við bæinn El-Jinya á Vesturbakkanum í dag. Hópur Palestínumanna reyndi að mótmæla skemmdarverkum ísraelskra landtökumanna með því að gróðursetja ólífutré en ísraelskir hermenn beittu táragasi og kylfum til að hrekja þá á brott.

Íbúar El-Jinya segja að bókstafstrúaðir gyðingar í næsta nágrenni haf ítrekað unnið skemmdarverk á eignum þeirra. Þeir hafi kveikt í moskum, hoggið niður ólífutré og eyðilagt uppskeru Palestínumanna. Um síðustu helgi voru gyðingastjörnur málaðar á nokkur hús, ásamt slagorðum á hebresku um að arabar séu réttdræpir.

Vegna þessa var boðað til friðsamra mótmæla í dag en þegar átti að gróðursetja táknræn ólífutré í útjaðri bæjarins réðst ísraelski herinn gegn mótmælendum með kylfum, höggsprengjum og táragasi. Enginn særðist alvarlega í átökunum en palestínskir aðgerðarsinnar segja það með ólíkindum að þeir geti ekki gróðursett ólífutré á eigin landi. Ísraelski herinn segir mótmælendur hafa verið komna inn á öryggissvæði.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku