Stjórnin fari varlega í skattheimtu

Hótelgrunnur við Hörpu. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Uppgangur í ferðaþjónustu og hagstætt gengi krónunnar veldur því að borð er fyrir báru í greininni. Þetta er mat hagfræðings hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála. Stjórnvöld þurfi hins vegar að fara varlega í að auka skattheimtu.
Stjórnvöld áforma að hækka virðisaukaskatt á gistingu í maí á næsta ári úr lægra skattþrepi, sem er sjö prósent, í hærra skattþrepið sem er 25,5 prósent. Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra sagði í fréttum Sjónvarps í gær að ferðaþjónustan í landinu sé ríkisstyrkt á meðan virðisaukaskattur á gistingu sé í undanþáguskattþrepi. Mikilvægt sé að greinin vaxi á raunverulegum forsendum, en ekki á grundvelli umbunar umfram aðrar greinar. Samtök ferðaþjónustunnar hafa gagnrýnt þessi áform harðlega og bent á að í flestum löndum í Evrópu sé gisting í lægra undanþáguskattþrepi.
Gisting í lægra þrepi
Samkvæmt belgísku Hotrec-stofnuninni sem heldur utan um ýmiss konar tölfræði sem tengd er ferðaþjónustu í Evrópu er gisting í 28 af 32 Evrópulöndum í lægra skattþrepi. Helga Kristjánsdóttir, hagfræðingur hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála, segir að tvær hliðar séu á málinu.
„Greinin stendur mjög vel þar sem það hefur verið mikill uppgangur og vöxtur. Að því leyti er borð fyrir báru og jafnframt er gengi krónunnar hagstætt hvað þetta varðar. Hins vegar getur auðvitað gengi krónunnar breyst ört til frambúðar. Og jafnframt hefur það sýnt sig að há skattheimta á það oftar en ekki til að snúast upp í andhverfu sína. Stjórnvöld eru því ekki endilega að ná meiru út úr þessu með þeim hætti," segir Helga.
Lönd fá einkunn
Þá segir hún að aukin skattheimta geti fælt frá erlenda fjárfesta, sem til dæmis hefðu áhuga á að reisa hótel. „Eins er það þegar fjárfestar huga að svona hlutum að þá er stöðugleiki í skattlagningu og öðrum þáttum sem við þeim blasa mjög mikið atriði. Löndin eru hreinlega sett í samkeppnismælikvarða sem er búinn til fyrir lönd og þeim er gefin einkunn hvað þetta varðar," segir hún.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














