Stjórnendur Isavia vilja ekki tjá sig



  • Prenta
  • Senda frétt

Stjórnendur Isavia vilja ekki tjá sig við fjölmiðla um hvað fór úrskeiðis þegar tveimur mönnum tókst að smygla sér inn í flugvél Icelandair um helgina.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia sagði í samtali við fréttastofu í morgun að verið væri að skoða alla ferla og kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis. Það sé þó ekki sjálfgefið að svo sé. Hann segir að hér sé verið að fjalla um viðkvæm öryggismál og því óvíst hvort stjórnendur Isavia vilji tjá sig eitthvað um slíkt við fjölmiðla.


Mennirnir tveir sem reyndu að lauma sér um borði í vélina sem, var á leið til Kaupmannahafnar, höfðu dulbúið sig sem flugvallarstarfsmenn. Þeir eru hælisleitendur frá Alsír og voru látnir lausir að loknum yfirheyrslum. Við komuna til landsins héldu þeir því fram að þeir væru yngri en átján ára en aldursgreining leiddi í ljós að svo var ekki. Isavia annast öryggismál á Keflavíkurflugvelli en ljóst þykir að atvikið er alvarlegt brot á öryggisreglum. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku