Stjórnarskrárfrumvarp innan 2 vikna
Fyrst birt: 21.10.2012 01:57, Síðast uppfært: 21.10.2012 03:53

Frumvarp að nýrri stjórnarskrá, unnið upp úr tillögum stjórnlagaráðs ætti að geta verið tilbúið eftir um tvær vikur.
Þetta segir Valgerður Bjarnadóttir, formaður Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Frumvarpið yrði lagt fyrir þingið og rætt í þremur umræðum áður en það yrði að lögum. Valgerður telur að hægt yrði að klára málið fyrir Alþingiskosningar í vor og kjósa um nýja stjórnarskrá samhliða þeim.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














