Starar á kvöldflugi

Staraflokkur í Seljahverfi. Mynd:Kristín Björg Ásmundsdóttir
Stór hópur stara var á ferð um Seljahverfið í Reykjavík síðdegis í gær Meðfylgjandi myndir sýna starahópinn á flugi en stari en er mjög fimur flugfugl. Ekki er óalgengt að sjá stara fljúga saman í stórum hópum Þeir eru einkum á ferð síðdegis og á kvöldin.
Þá leita þeir sér að náttstað. Í Fuglahandbókinni, greiningarbók um íslenska fugla, segir að stari sé samanrekinn, sterkbyggður fugl. Vængir hans séu stuttir og hvassyddir og stélið stutt en breitt. Starinn er hér nýr landnemi og varð fyrst vart sem varpfugls á Höfn í Hornafirði um 1940. Árið 1963 fannst fyrsta starahreiðrið í Reykjavík. Nokkurt óorð hvílir á stara vegna óværunnar sem fylgir honum og hefur gert mörgum gramt í geði.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
InnlentTilkynna um bilaða upptöku







