Stálu tólf umferðarmerkjum

Mynd: Getty Images

Tólf umferðarmerkjum var stolið úr Bolungarvíkurgöngunum og tveimur við Vatnsfjarðarháls inni í Djúpi um helgina. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær merkjunum var stolið, en þjófnaðurinn uppgötvaðist í fyrradag.

Hvert merki kostar 60 þúsund krónur, þannig að verðmæti þýfisins er 840 þúsund krónur. Merkin úr göngunum eru upplýsingaskilti, blá með hvítum stöfum, en hin er hefðbundin gul þríhyrningsmerki með upphrópunarmerki.

Lögreglan á Vestfjörðum biður þá sem hafa einhverjar upplýsingar um málið að hafa samband í síma 450 3731.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku