SR sigraði Víkinga að norðan

Skautafélag Reykjavíkur vann 7-2 sigur á Víkingum að norðan í gærkvöld
Skautafélag Reykjavíkur vann öruggan sigur á Víkingum frá Akureyri 7-2 á Íslandsmótinu í íshokkí í Skautahöllinni í Laugardal í gærkvöld. Akureyringar eiga nú litla möguleika á að komast áfram í úrslitakeppnina en SR stendur vel að vígi.
SR komst í 3-0 í fyrsta leikhluta og því komið í vænlega stöðu strax í upphafi. Í öðrum leihluta skoraði lið SR þrjú mörk gegn tveimur mörkum Víkinga og staðan því 6-2. Það var svo SR sem skoraði eina mark þriðja og síðasta leikhluta og innsiglaði 7-2 sigur SR í leiknum.
Robbie Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir SR í leiknum og þeir Arnþór Bjarnason, Björn Róbert Sigurðarson, Daniel Kolar, Guðmundur Björgvinsson og Gauti Þormóðsson allir eitt mark en norðanmanna skoruðu Andri Mikaelsson og Steinar Grettisson.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku







