SR sigraði Björninn

SR vann góðan sigur á Birninum á Íslandsmótinu í kvöld
Skautafélag Reykjavíkur sigraði Björninn 5-3 á Íslandsmóti karla í íshokkí í kvöld en leikurinn fór fram í Skautahöllinni í Laugardal.
Staðan var 0-0 eftir fyrsta leikhluta en í öðrum leikhluta skoraði lið Bjarnarins þrjú mörk gegn tveimur mörkum SR. SR jafnaði metin í 3-3 í upphafi þriðja leikhluta og gerði svo útum leikinn með tveimur mörkum á lokamínútum leiksins.
Björn Róbert Sigurðsson skoraði tvö mörk fyrir SR í leiknum og þeir Egill Þormóðsson, Daniel Kolar og Robbie Sigurðsson eitt mark hver en Ólafur Hrafn Björnsson skoraði tvö marka Bjarnarins og Falur Birkir Guðnason eitt mark.
SR er nú svo gott sem öruggt í úrslitakeppnina sem verður í byrjun mars.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ÍþróttirTilkynna um bilaða upptöku







