Spítalinn kominn út fyrir þolmörk

Starfsfólk Landspítalans segir spítalann kominn út fyrir þolmörk hvað varðar tæki og tól. Misjafnar skoðanir eru á þeim ákvörðunum sem teknar hafa verið til þess að mæta 630 milljóna króna niðurskurði á spítalanum á næsta ári. Morgunútvarpið á Rás 2 ræddi við nokkra starfsmenn eftir fund með forstjóranum í gær þar sem tillögurnar voru kynntar.

„Maður finnur alveg að tækjabúnaðurinn hérna er allt annar heldur en hann væri á sjúkrahúsi af sambærilegri stærðargráðu í útlöndum, við erum að nota oft eitthvað sem er hugsað sem einnota, ég er ekkert viss um að allir sjúklingar geri sér grein fyrir því. Sumt af þessu verður augljóslega mjög erfitt og greinilega afturför eins og lokun líknardeildarinnar á Landakoti. Maður spyr sig hvort við hefðum virkilega þurft að hafa þessa kreppu til þess að gera þá sjálfsögðu breytingu sem felst í að loka niðurníddu húsnæði á Sogni og flytja þá starfsemi í miklu vitlegra umhverfi en hún er í dag,“ sagði einn starfsmaðurinn.

Hann talaði líka um að starfsmönnum spítalans sárnaði að landsbyggðarþingmenn og bæjarstjórnir hlypu til í hvert sinn sem hróflað væri við starfsstöðvum spítalans í þeirra kjördæmi. Svo virtist sem ábyrðartilfinningu fyrir heildinni skorti, menn væru fljótir til að verja störf í sínu kjördæmi frekar en að huga að þjónustu fyrir sjúka.

Annar starfsmaður sagði að sjúklingar frá Akureyri tækju eftir því að meira væri skorið niður í Reykjavík en fyrir norðan. Þeir lýstu einnig áhyggjum af álaginu á spítalanum:

„Nú er verið að skera niður úti um allt land og hvert fer fólk þá, það fer á Landspítalann í Fossvogi og Hringbraut. Við getum ekki og höfum aldrei getað vísað fólki frá, við tökum við öllum, ef heilsugæslunni dettur í hug að loka hjá sér yfir sumartímann að hluta til þá tökum við við því, við tökum alltaf við.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka