Söngur hjálpar til við endurlífgun

Við athöfnina í dag þar sem Gísli var valinn skyndihjálparmaður ársins.
Hárrétt viðbrögð föður 18 ára gamallar stúlku skildu milli lífs og dauða fyrir ári þegar hann endurlífgaði hana með hjartahnoði. Hann hnoðaði í takt við lag sem allir þekkja.
Gísli Örn Gíslason er skyndihjálparmaður ársins. Hann var heiðraður í dag á 112- deginum sem haldinn var um land allt, en markmið dagsins er að kynna neyðarnúmerið og hvetja fólk til að hringja í 112 ef það telur sig þurfa á aðstoð að halda í stað þess að hika.
Þá var skyndihjálparmaður ársins heiðraður en hann bjargaði lífi dóttur sinnar með hárréttum viðbrögðum þegar hjartað hennar ætti skyndilega að slá í janúar í fyrra. Tilviljunin ein réð því að hann kíkti inn í herbergið hennar á þessari ögurstundu. „Og ég er í raun á leið út úr herberginu þegar að ég tek eftir því að höfuðið á henni dettur svona niður og til hliðar og ég hélt í fyrstu að hún væri bara að stríða mér. En svo leist mér ekkert á þetta og þá tók ég púlsinn á henni og þá gerði ég mér grein fyrir því að hún var komin í hjartastopp. Þá kallaði ég í konunna og hóf hjartahnoð þarna á gólfinu,“ segir Gísli þegar hann rifjar upp daginn örlagaríka.
Hann hafði lært á skyndihjálparnámskeiði að hnoða í takt við sönginn um piparkökurnar sem Hérastubbur bakari syngur. „Kennarinn bara gleymdi að segja í hvaða tóntegund þetta ætti að vera en þetta kemur bara ósjálfrátt þegar maður lendir í þessum aðstæðum. Og lagið hjálpaði mér alveg gríðarlega bara við að halda ró minni,“ segir Gísli og bætir því við að það sé annað að hnoða dúkku á námskeiði heldur en að halda á barninu sínu sem er orðið blátt í framan. „Þetta var alveg ótrúleg stund. Við erum búin að fá að hlusta á símtalið frá Neyðarlínunni og það var svo mikið sem gekk á.“
Sigurbjörg Jóhanna á föður sínum lífið að launa. „Ég var bara mjög heppin að hann skyldi vera hjá mér þarna þessar fimm mínútur sem hann stoppaði inní herberginu.“
Hægt var að fræðast um skyndihjálp í Smáralindinni í dag þar sem fulltrúar Rauða krossins kenndu fólki réttu handtökin. Og þar kom á daginn að þó piparkökusöngurinn sé góður þá er Öxar við ána jafnvel enn betra lag til að styðjast við. Þá er hnoðað í takt við lagið og þegar sungið er „fram, fram, aldrei að víkja“ þá á að blása.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







