Söfnuðu tvisvar fyrir orgelinu
Fyrst birt: 23.01.2012 11:09, Síðast uppfært: 23.01.2012 11:09

Hönnun orgelsins tók mið af umhverfinu í Stykkishólmi.
Nýtt orgel er risið í Stykkishólmskirkju. Þetta er 22ja radda Klaisorgel og hljómur þess ólíkt tilkomumeiri í kirkjunni en þess gamla, enda er organistinn himinlifandi. Hönnun orgelsins tekur bæði mið af kirkjunni og svo umhverfi Stykkishólms.
Það má segja að það hafi verið safnað tvisvar sinnum fyrir orgelinu því skrifað var undir samninga nokkrum mánuðum fyrir bankahrun. Þegar upp er staðið hefur orgelið tvöfaldast í verði en fjársöfnun hefur gengið vel.
Vertu vinur Landans á Facebook.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








