Snyrt fyrir Cruise



  • Prenta
  • Senda frétt

Koma stórleikarans Tom Cruise og föruneytis hans er nú undirbúin af kappi að Hrafnabjörgum í Eyjafirði. Þegar fréttamaður RÚV átti leið þar hjá í morgun var verið að slá og snyrta í kringum húsið sem áður var í eigu Jóhannesar Jónssonar sem kenndur er við Bónus.

Talið er að leikarinn heimsfrægi muni halda upp á fimmtugsafmælið sitt í húsinu 3. júlí en áætlað er að tökum á stórmyndinni Oblivion verði lokið um það leyti. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku