Snjóalög skoðuð vegna hláku
Fyrst birt: 27.01.2012 12:42, Síðast uppfært: 27.01.2012 12:42

Óvissustigi vegna snjóflóðahættu var aflýst á Vestfjörðum í gær, en starfsmenn Veðurstofunnar eru nú við mælingar til að meta hvort asahláka, sem spáð er, geti komið af stað flóðum. Vitað er um staði þar sem snjór hefur safnast upp, en ekki enn fallið flóð.
Enn hefur ekki tekist að ryðja allar leiðir á Vestfjörðum. Ófært er frá Vatnsfirði og austur fyrir Klettsháls en þar er illviðri og verður ekki opnað í dag. Í Djúpinu er enn þæfingsfærð og aðeins fært á fjórhjóladrifsbílum. Fróðárheiði á Snæfellsnesi er þungfær og þar er stórhríð. Á Holtavörðuheiði er hálka og hvassviðri.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku

Ófært milli borgar og Suðurlands






