Snæfell sigraði topplið Keflavíkur

Snæfell vann góðan sigur á toppliði Keflavíkur í kvöld - Mynd: Eva Björk

Tuttugustu umferð úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik lauk í kvöld með þremur leikjum.

Njarðvík vann Fjölni 95-62 á heimavelli. Lele Hardy skoraði 24 stig og tók 17 fráköst fyrir Njarðvíkurkonur en Brittney Jones var með 33 stig og 6 fráköst fyrir Fjölni.

Hamar vann þriðja sigur sinn í röð þegar liðið lagði Val 86-83 á heimavelli sínum í Hveragerði. Katherine Virginia Graham var atkvæðamest Hamarskvenna með 26 stig og 6 fráköst en Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 21 stig og tók 4 fráköst fyrir Val.

Þá gerði lið Snæfell sér lítið fyrir og sigraði topplið Keflavíkur 91-83 á heimavelli sínum í Stykkishólmi. Jordan Lee Murphree skoraði 31 stig og tók 6 fráköst fyrir Snæfell en Pálína Gunnlaugsdóttir skoraði 33 stig og tók 4 fráköst fyrir gestina úr Keflavík.

Keflavík er nú efst í deildinni með 32 stig og hefur tveggja stiga forystu á Njarðvík sem er í öðru sæti með 30 stig. KR hefur 24 stig í þriðja sæti og Haukar 22 stig í því fjórða. Snæfell er í fimmta sæti með 18 stig og Valur í sjötta sæti með 14 stig en Hamarskonur eru komnar í 10 stig líkt og Fjölnir og eru liðin neðst í deildinni.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku