Smjörskortur verður kjötskortur

Norskir nautkálfar. Mynd: Shutterstock.

Sláturnautum hefur fækkað í Noregi. Smjörkreppan þar í landi virðist vera að breytast í kjötkreppu og Norðmenn sjá nú fram á kjötskort í landinu. Kýr sem senda átti til slátrunar hafa verið önnum kafnar við smjörframleiðslu.

Norðmönnum leist ekki á blikuna í byrjun desember þegar fréttir bárust af því að smjör væri nánast á þrotum í verslunum þar í landi. Danir hlupu undir bagga og sendu frændum sínum smjörbirgðir til að bjarga jólabakstrinum.

Nú hefur norski kjötrisinn Nortura, sem selur afurðir frá nærri 18.000 norskum bændum, varað við því að senn kunni nautgripakjötið líka að þrjóta. Kjötframleiðendur anna ekki eftirspurn, sumar vörutegundir eru uppseldar og viðskiptavinir matvöruverslana verða þá að sætta sig við innflutt kjöt. Kýr sem áttu að fara í slátrun eru látnar mjólka til smjörframleiðslu.

Bóndi á Austfold segir að mjólkurkúm hafi fækkað enda gefi hver kýr nú meira af sér en áður. Sláturnautum hafi ekki verið fjölgað til að mæta þessu. Kjötframleiðendur vilja að stjórnvöld grípi til aðgerða til að auka nautakjötsframleiðslu.  

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent, Neytendamál

Tilkynna um bilaða upptöku