Slys í Húsdýragarðinum

Ungur drengur slasaðist töluvert á fæti þegar hann flæktist í hjóli á leiktækjalest í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Gert var að sárum drengsins á Landspítalanum í dag, en líklegt þykir að græða þurfi skinn af læri á sárið.
Drengurinn, sem er á leikskólaaldri, var í fylgd föður síns í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, síðastliðinn þriðjudag, þegar slysið varð.
Lestin sem um ræðir keyrir reglulega um garðinn með farþega í vögnum í eftirdragi. Drengurinn var ekki farþegi í lestinni heldur fótgangandi þegar hjól á milli tveggja öftustu vagnanna læstist í fæti hans. Hann dróst síðan nokkra vegalengd með vagninum. Drengurinn slasaðist á ökkla og var færður á sjúkrahús.
Foreldrar drengsins segjast ævinlega þakklát manni og konu sem veittu drengnum fyrstu aðstoð í garðinum. Faðir drengsins sagði í samtali við fréttastofu síðdegis að hann væri að jafna sig eftir svæfingu, þar sem gert var að sárum hans í dag. Hann fengi líklega að fara heim þegar liði á daginn. Sárið sé á ökklanum, drengurinn hafi sloppið við beinbrot en líklega þarf að græða skinn á sárið.
Lögreglan og Vinnueftirlitið voru kölluð til vegna slyssins og er rannsókn lokið. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnueftirlitinu er lestin í lagi og engar athugasemdir gerðar við frekari notkun hennar. Hún hefur þó ekki verið í notkun í garðinum frá því að slysið varð. Forstöðumaður Fjölskyldu- og húsdýragarðsins segir það skoðað ítarlega innanhúss hvort og hvernig mögulegt sé að bæta öryggi. Hann segir að hugur starfsfólks Fjölskyldu- og húsdýragarðsins sé hjá drengnum og fjölskyldu hans.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













