Slóvenar lögðu Ungverja

Slóvenar unnu Ungverja með tveggja marka mun 32-30 í lokaleik dagsins í annarri umferð milliriðils tvö á Evrópumótinu í handknattleik í Serbíu.

Slóvenar gerðu þar með út um vonir Ungverja um að komast í undanúrslit en Króatar eru þess í stað öruggir áfram ásamt Spánverjum fyrir lokaumferðina sem er á morgun. Spánverjar eru efstir í riðlinum með sjö stig og Króatar næstir með sex stig, Slóvenar hafa fjögur stig, Ungverjar þrjú og Íslendingar og Frakkar tvö stig.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku