Gaumur, eignarhaldsfélag Bónusfjölskyldunnar, sem nú stefnir í að minnsta kosti tuttugu milljarða gjaldþrot, eins fram kom í fréttum RÚV á dögunum, átti á sínum tíma Baug sem nú er í gjaldþrotaskiptum. Baugur átti Stoðir, sem áður hétu FL-Group. Stoðir áttu aftur félag sem heitir Stytta, ásamt félaginu Blacstar Limited á eyjunni Mön.
Félagið Stytta var notað sem einskonar leppur í flóknum viðskiptafléttum Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Pálma Haraldssonar og Hannesar Smárasonar þar sem þeir seldu á milli sín Sterling flugfélagið, hluti í bresku Iceland-verslunarkeðjunni og sitthvað fleira.
Eignir Styttu eru nánast engar en eftir sitja um eitt hundrað milljarða króna skuldir, sem lítil von er til að fáist nokkurn tíma greiddar að mati lánadrottna. Stærsta skellinn þar tekur Gamli Landsbankinn, enda útséð að ekkert er til upp í risavaxinn gjalddaga kúluláns í haust.
Annað eignarhaldsfélag, Sólin skín, var á sínum tíma skráð til heimilis í gömlu höfuðstöðvum Baugs að Túngötu 6. Það er nú gjaldþrota en þeir Jón Ásgeir og Pálmi Haraldsson nýttu það til alls kyns viðskipta. Kröfur í það nema um tuttugu milljörðum hið minnsta, en eignirnar harla rýrar, ef nokkrar.
Samanlagt skulda því þessi tvö félög, Stytta og Sólin skín, að minnsta kosti hundrað og tuttugu milljarða en eignirnar eru varla taldar duga fyrir skiptakostnaði þrotabúana.
Vegir þessara þriggja hafa víða legið saman í viðskiptum síðustu ár og þeir tengjast gríðarlegum fjölda fyrirtækja sem skilja eftir sig mörg hundruð, eða jafnvel mörg þúsund milljarða skuldahala.
Athugasemd Stoða vegna fréttar RÚV um eignarhaldsfélagið Styttu:
„Í frétt RÚV í gær var fjallað um málefni eignarhaldsfélagsins Styttu og því haldið fram að eignir Styttu “séu nánast engar” og “ekkert sé til upp í” skuldir Styttu við Landsbankann.
Þetta er fjarri sanni, því Stytta á tæplega 30% hlut í Iceland verslunarkeðjunni. Fréttastofa RÚV hefði hæglega getað sannreynt þetta með því að fletta upp í ársreikningi Styttu. Í bókum Styttu er eignarhluturinn í Iceland metinn á töluvert hærra verði en sem nemur skuldum við Landsbankann.
Eignarhlutur Styttu í Iceland er einnig mikils virði í augum Landsbankans, ef marka má orð eins forsvarsmanna Landsbankans sem lét nýlega hafa eftir sér að Iceland “væri svo gríðarlega sterkt og verðmikið að því má líkja við stóra peningamaskínu”. Hafa ber í huga að Landsbankinn er ekki einungis lánveitandi Styttu heldur einnig meðal stærstu hluthafa Iceland. Þess skal einnig getið að meirihlutaeigendur Styttu eru lykilstjórnendur Iceland Foods, sem eiga 64% en Stoðir eiga 36%.“
frettir@ruv.is