Skotið á lögreglustöð í Jönköbing

Skotið var á aðalinngang lögreglustöðvarinnar í Jönköbing í Svíþjóð í nótt. Þegar starfsfólkið kom til vinnu í morgun blasti við gat eftir byssukúlu á rúðu við innganginn.

Ekki er vitað hver var að verki og enginn hefur hótað því að skjóta á húsið, að því er kemur fram í frétt frá sænsku fréttastofunni TT.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku