Skotar grípi til refsiaðgerða

Fyrrverandi samgönguráðherra í skosku heimastjórninni hvetur skosk stjórnvöld til að grípa til refsiaðgerða gegn Íslendingum og Færeyingum vegna makríldeilunnar. Kannski verði þá hægt að ná samkomulagi um kvóta.

Engin niðurstaða fékkst í viðræður Íslendinga og Færeyinga annars vegar og Norðmanna og Evrópusambandsins hins vegar í Reykjavík í síðustu viku um skiptingu makrílkvótans. Ríkin sjálf ákveða því aflaheimildir sínar í ár en það hefur verið umdeilt undanfarin ár.

Eftir fundinn sögðu Maria Damanaki, sjávarútvegsmálastjóri Evrópusambandsins, og Lisbeth Berg-Hansen, sjávarútvegsráðherra Noregs, í yfirlýsingu að það væri Íslendingum og Færeyingum að kenna að ekki hefði náðst samkomulag.

Richard Lochhead, sjávarútvegsráðherra Skota, sagði að skelfilegt væri til þess að hugsa að nú yrði enn ein vertíðin án samkomulags. Hann sagði að Evrópusambandið yrði að hraða undirbúningi refsiaðgerða gegn Íslendingum og Færeyingum því að ósjálfbær veiði þýddi að makrílstofninn færi undir öryggismörk eftir tvö ár nema eitthvað yrði að gert.

Tavish Scott, þingmaður Hjaltlandseyja á skoska þinginu, segir í viðtali í Shetland Times í dag að réttast sé að skoska þingið grípi sjálft til refsiaðgerða sem Evrópusambandið geti síðan einnig gripið til. Scott, sem var áður leiðtogi frjálslyndra í Skotlandi og samgönguráðherra í skosku heimastjórninni, segir að kannski verði það til að knýja fram samkomulag.

Makrílviðræðurnar verða ræddar á sameiginlegum fundi utanríkismála- og atvinnuveganefnda Alþingis í dag.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku