Prenta frétt

Senda frétt

Skortur á sandsílum

Farið er að ganga á 2007-árgang sandsíla sem hefur verið uppistaðan í stofninum síðastliðin þrjú ár samkvæmt niðurstöðum úr leiðangri Hafrannsóknarstofnunar sem lauk 15. júlí. Ívið meira af seiðum fengust í leiðangrinum nú en í fyrra, langflest í Faxaflóa, lítið eitt í Breiðafirði, en mjög lítið við Suðurströndina.

Í fyrra fannst talsvert magn af seiðum en þau hafa ekki skilað sér eins og væntingar stóðu til inn í stofninn nú sem eins árs síli.  Ennfremur virðist 2008-árgangurinn slakur.  Mikil þörf er fyrir góða nýliðun ef stofninn á ekki að gefa enn frekar eftir.  Niðurstöður úr leiðangrinum eru eingöngu byggðar á lengdarmælinum á síli en ekki aldri.  Farið var á skipinu Dröfn RE 35 og stóð leiðangurinn í ellefu daga.  Fæðuskortur hefur verið hjá sumum fuglategundum vegna skorts á sandsíli.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

9. september 2010

Streymiþjónusta