Skortir öflugan bakhjarl

Mynd: Wikimedia Commons

Tap hefur verið á flugi Iceland Express til New York í allt haust, segir upplýsingafulltrúi félagsins. Félagið geti hafi ekki jafngóðan bakhjarl og keppinauturinn og geti því ekki borið uppi tapið.

Verið sé að finna flug fyrir farþega með öðrum flugfélögum sem hugðust fljúgja með Iceland Express til og frá Bandaríkjunum í dag og á fimmtudag.

Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Iceland Express, sagði í samtali við Morgunútvarpið á Rás 2 að tap hefði verið á flugi til New York í allt haust. Aðspurður sagði hann ákvörðunina tengjast fjárhagsstöðu fyrirtækisins óbeint. „Þetta tengist fjárhagsstöðunni að því leyti að fyrirtækið ætlar ekki að tapa á þessari flugleið. Við erum ekki stórt fyrirtæki í samanburði við okkar aðalkeppinaut hér á Íslandi sem er að skila miklum hagnaði til lífeyrissjóðanna. Við höfum ekki þvílíkan bakhjarl sem lífeyrissjóðirnir eru og getum því ekki leyft okkur það að tapa á flugi. Tapið er ekkert lítið á þessari flugleið þannig að það við verðum að skrúfa fyrir hana í bili og skipuleggja okkur aftur upp á nýtt fyrir vorið.“

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku