Skólakerfið mismunar börnum

Vopnafjörður.

Skólakerfið mismunar börnum á landinu því sumstaðar er nám í heimabyggð ekki í boði. Á Vopnafirði þurfa sum börn að flytja burt 15 ára til að fara í framhaldsskóla á meðan börn á Þórshöfn geta nýtt sér fjarnám.

Á Vopnafirði búa tæplega 700 manns og þegar börnin útskrifast úr grunnskóla 15 eða 16 ára gömul fara þau til Akureyrar eða á Laugar í framhaldsskóla. Þessu fylgir mikill kostnaður fyrir foreldra sem vilja einnig að börnin taki út meiri þroska áður en þau flytja að heiman. Á Vopnafirði er öll aðstaða fyrir hendi og því berjast Vopnfirðingar fyrir fjármagni í að opna framhaldsskóladeild þar sem börnin gætu verið fyrstu tvö árin eftir grunnskóla.

Á Þórshöfn, í um 70 kílómetra fjarlægð, var sama staða uppi fyrir þremur árum eða þangað til menntasetur var stofnað í samvinnu við Framhaldsskólann á Laugum. Hildur Stefánsdóttir, verkefnisstjóri framhaldsskóladeildarinnar á Laugum, segir þetta hafa reynst vel.

Hún segir þetta samfélagslega mikilvægt því meira af ungu fólki sé í bænum. Aðspurð að því hvort þetta hafi komið niður á gæðum námsins eða námsframboði svarar Hildur: „Nei við reynum í alla staði að halda uppi sömu stöðlum og sömu kröfum. En vissulega reynir þetta aðeins meira á nemendurna sem námsmenn því þetta er meira sjálfsnám. Þau eru ekki undir jafn mikilli handleiðslu fagkennara.“

Nemendur frá Þórshöfn og nærsveitum fara eina viku að Laugum og kynnast kennurunum og öðrum nemendum. Hildur segir að vissulega geri það sumum gott að flytja ungir að heiman en það sé ekki algilt.

„Kannski er fólk að horfa til þess að reynsla þeirra sjálfra síðan þau voru 15 ára var kannsi ekki endilega auðveld og vilja þess vegna reyna að bæta skilyrði fyrir sín börn,“ segir Hildur.

Þó aðeins 70 kílómetrar séu milli Þórshafnar og Vopnafjarðar geta samgöngur verið erfiðar að veturna. Því telur Hildur að það gæti verið erfitt fyrir börn frá Vopnafirði að sækja menntasetrið á Þórshöfn.

„Framhaldsskólinn á Laugum er núna búinn að prufukeyra þetta form, eitthvað sem væri auðvelt að setja upp á nýjum stað ef það fengist fjármagn,“ segir Hildur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku