Skóflustunga að FM tekin í dag
Fyrst birt: 15.06.2012 10:50, Síðast uppfært: 15.06.2012 10:50

Fyrstu nýstúdentarnir í Mosfellsbæ.
Fyrsta skóflustungan að byggingu Framhaldsskólans í Mosfellsbæ við Bjarkarholt verður tekin eftir hádegi í dag. Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir 4.000 fermetra byggingu sem rúmi 400 til 500 hundruð bóknámsnemendur.
Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ var formlega stofnaður í febrúar 2008 og hófst kennsla haustið 2009. Fyrstu stúdentarnir voru útskrifaðir í vor, fimm talsins, en um 200 nemendur voru við nám í skólanum síðasta vetur. Kennt hefur verið í gamla Brúarlandshúsinu. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri, hjálpast að við að taka fyrstu skóflustunguna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













