Skoða kosningar í Evróvisjón

Til skoðunar er að breyta reglum þannig að í framtíðinni verði kosið á milli tveggja efstu laga í forkeppninni fyrir Evróvisjón söngvakeppnina. Sú símakosning muni þá ein gilda.

Landsmenn fylgjast að öllu jöfnu grannt með Söngvakeppni sjónvarpsins þar sem valið er lag til að senda í Evróvisjón söngvakeppnina, sem í þetta sinn verður í Bakú í Aserbædjan. Í eina tíð var sá háttur hafður á að dómnefnd valdi lagið en hin síðari ár hefur það verið valið með símakosningu. Nú var farin blönduð leið. Hin klassíska Evróvisjón stigagjöf er höfð til hliðsjónar og það lag sem fær flest stig, hvort sem er hjá dómnefnd eða í símakosningu, fær tólf stig, hið næsta tíu, svo átta og svo framvegis. Símakosninga og dómnefndarval gilda til helminga og úrslitin vegin niðurstaða beggja.

Á laugardagskvöldið fékk lagið Stattu upp fékk flest atkvæði í símakosningunni, -og tólf stig. Mundu eftir mér fékk næst-felst atkvæði en Hugarró var í þriðja sæti. Dómnefnd þótti Mundu eftir mér besta lagið og gaf því tólf, Hugarró næstbest en setti það Stattu upp í þriðja sæti.

Niðurstaðan er því skýr. Mundu eftir mér fer til Bakú, því verður ekki breytt þótt tæpt hafi staðið. En vera kann að þessari aðferð verði breytt. Tvö efstu lögin keppi til úrslita, og það verði þá eingöngu símakosning sem gildi á lokasprettinum.

„Ef við höldum áfram með söngvakeppni Sjónvarpsins, sem er aldrei gefið mál, það er alltaf tekin ákvörðun á hverju ári, þá höfum við verið að íhuga að gera enn eina breytingu á næsta ári eins og Norðmenn gera og Danir gera, að tvö efstu lögin fari aftur á svið og að það verði kosið á milli þeirra,“ segir Jónatan Garðarsson, fararstjóri Evróvisjónhópsins. „Þetta er hugmynd. Það er ekki búið að ákveða þetta.“

íhuga að 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku