Skjálfti upp á 3,5 í Kötlu

Jarðskjálfti í Kötlu í Mýrdalsjökli sem varð klukkan tíu mínútur fyrir tíu mældist 3,5. Kolbrún Matthíasdóttir, starfsmaður á bæjarskrifstofunni í Vík segir að sumir hafi fundið skjálftann í sveitinni.
„Aðrir fundu hann en voru ekki vissir um hvað hafði gerst fyrr en að betur athuguðu máli,“ sagði Kolbrún. Hún sagði hluti ekki hafa færst úr stað eða frétt af neinum skaða af þessum skjálfta.
Bergþóra Þorbjarnardóttir jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni sagði að skjálftinn hefði orðið sunnanlega í öskjunni og því hafi hann fundist þetta vel í Vík. Annar skjálfti sem mældist 2,5 reið yfir klukkan 10:20 og er verið að fara betur yfir gögn í tengslum við hann. „Við sjáum ekki meiri óróa að svo búnu, það er enginn gosórói er sjáanlegur.“ sagði Bergþóra í samtali við fréttastofu RÚV.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Skjálftavirkni í Kötlu






