Skilorð fyrir brot gegn 14 ára

Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær karlmann til tólf mánaða skilorðsbundins fangelsis fyrir kynferðisbrot gegn fjórtán ára pilti. Maðurinn játaði að hafa greitt piltinum fyrir að fróa sér, hafa við sig munnmök og endaþarmsmök.
Sannað þykir að maðurinn hafi tvisvar greitt piltinum kynmök, samtals allt að þrjátíu þúsund krónur.
Óttar Guðmundsson geðlæknir skoðaði manninn. Niðurstaða hans var sú að maðurinn væri vel gefinn og vel gerður samkynhneigður maður sem hefði um árabil lifað í felum með kynhneigð sína. Hann hafi freistast til að leita eftir samskiptum við aðra karlmenn í netheimum og þetta hafi orðið til þess að hann hafi verið afhjúpaður með miklum afleiðingum fyrir hann og fjölskyldu hans, að því er fram kemur í dómi Héraðsdóms Vesturlands. Maðurinn hafi misst vinnu sína eftir að upp komst um hann. Óttar segir hann hafa tekið vel á sínum málum, hann hafi farið í áfengismeðferð og stundað fundi með SLAA, sem eru samtök kynlífs- og ástarfíkla.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Tjáði sig ekki um sekt eða sakleysi
Kennari kærður fyrir vændiskaup






