Skelfilegt fyrir sýrlensku þjóðina
Fyrst birt: 09.02.2012 00:34, Síðast uppfært: 09.02.2012 05:06

Þúsundir hafa fallið fyrir hendi hersveita Sýrlandssstjórnar frá því mótmælin hófust. Miklar skemmdir hafa verið unnar á borginni Homs. Mynd: Nordic Photos/AFP/Youtube
Það hefur haft skelfileg áhrif fyrir sýrlensku þjóðina að Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom sér ekki saman um ályktun vegna Sýrlands. Þetta sagði Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í kvöld.
Ban sagði að þetta hefði orðið sýrlenskum stjórnvöldum hvatning til að herða enn aðgerðir sínar gegn andstæðingum stjórnvalda.
Ban Ki-moon tilkynnti við sama tækifæri að Arababandalagið hygðist á ný senda eftirlitssveitir til Sýrlands. Sveitirnar voru kallaðar frá Sýrlandi vegna vaxandi ofbeldis. Ban sagði að forysta Arababandalagsins hefði óskað eftir því að öryggissveitirnar störfuðu á vegum hvort tveggja Arababandalagsins og Sameinuðu þjóðanna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Fleiri fréttir
Tilkynna um bilaða upptöku

Enn sótt gegn almenningi í Sýrlandi
Skriðdrekar sækja inn í Homs






