Skammast sín ekki fyrir brotið

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra.


  • Prenta
  • Senda frétt

Innanríkisráðherra segist ekki skammast sín fyrir að hafa farið að eigin samvisku og beitt eigin dómgreind þegar hann skipaði karl í embætti sýslumanns á Húsavík.

Kærunefnd jafnréttismála segir innanríkisráðherra hafa brotið jafnréttislög en Ögmundur segir fráleitt að ekki megi taka tillit til meðmæla samstarfsmanna karlsins eins og tekið sé fram í úrskurðinum. 

Mjög hallar á kvenfólk í hópi sýslumanna og telur kærunefndin að skipa hefði átt konuna sem kærði í embætti en ekki karlinn. Lögmaður konunnar sagði í fréttum klukkan sjö að kærunefndin hefði metið konuna hæfari en karlinn í fjórum þáttum af átta, í þremur hefðu þau verið jafnhæf og karlinn jafnvel hæfari í einum þætti. 

Er ósammála

„Niðurstaðan hjá mér og ráðuneytinu var sú að þegar heildardæmið er skoðað, allir þessir þættir, hinir mælanlegu og hinir matskenndu að þá var okkar niðurstaða sú að ráða þann sem ráðinn var til starfans. Kærunefnd jafnréttismála var á öðru máli og ég er að sjálfsögðu ekki sammála hennar niðurstöðu," segir Ögmundur. 

Í rökstuðningi ráðherra er vísað til meðmælabréfs samstarfsmanna karlsins sem var skipaður sýslumaður á Húsavík en hann var þá settur sýslumaður við embættið. Kærunefndin segir að gjalda verði varhug við að leggja til grundvallar ákvörðun um skipan meðmælabréf samstarfsmanna og undirmanna.

Kann ekki við tóninn

„Ég kann nú ekki við þennan tón og það sem skýtur skökku við er að tala á þennan veg. Og samstarfsfólkið er að lýsa sinni afstöðu og sínum vilja. Sá vilji réð ekki, hann var ekki úrslitaþáttur en það er fráleitt að taka það fram í úrskurði af þessu tagi að það megi ekki taka tillit til slíkra þátta," segir ráðherrann. 

„Ég skammast mín ekki fyrir að fara að eigin samvisku og beita eigin dómgreind. En að sjálfsögðu er þetta þáttur í okkar stjórnsýslu, við höfum kærunefnd jafnréttismála starfandi og að sjálfsögðu lesum við þessa úrkskurði og það hefur áhrif inn í umræðuna," segir Ögmundur Jónasson. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku