Sjúkrasviði FSN ekki lokað

Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað.

Sjúkrasviði Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað verður ekki lokað í sumar eins og ráðgert var. Þrjátíu milljóna króna mótframlag Velferðarráðuneytisins gerði stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Austurlands kleyft að klára rekstaráætlun ársins.

Stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Austurlands var gert að skera rekstrarkostnað stofnunarinnar niður um 150-160 milljónir króna á þessu ári. Til að mæta þeim kröfum var ráðgert að loka sjúkrasviði Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, það er lyflækningadeild, fæðingardeild, skurðdeild og þar með bráðamóttöku, í 6 til 8 vikur yfir sumartímann. Hugmyndirnar mættu mikilli andstöðu. Nú liggur hins vegar fyrir að sviðinu verður ekki lokað. Einar Rafn Haraldsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands, segir að í staðinn verði dregið úr starfsemi á sjúkrasviðinu yfir lengri tíma, sennilega í allt að þrjá mánuði. „Rúmum verður fækkað og starfsfólk skiptist á að fara í sumarleyfi, með því móti næst töluverður peningur," segir Einar.

Þá verður ráðist í enn frekari aðhaldsaðgerðir víðsvegar innan stofnunarinnar. Velferðarráðuneytið kom til móts við stofnunina með því að leiðrétta rekstrargrunn hennar með þrjátíu milljóna króna framlagi. Einar segir það hafa skipt sköpum.

„Það gerði bara útslagið með að við gátum lokað rekstaráætlun sem okkur var skilt að skila og gátum ekki gert þannig að hún væri réttu megin við núllið. Það kom sér ákaflega vel á lokasprettinum."

Einar segist reikna með að komast megi hjá uppsögnum í þessum aðhaldsaðgerðum.
„Við ætlum að reyna að láta starfsmannaveltuna duga. Stöðugildum verður lítisháttar breytt og einhver störf minnkuð en ég vona að það komi ekki til uppsagna, að minnsta kosti ekki í stórum stíl."

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku