Sjómenn eldast
Fyrst birt: 02.02.2012 07:24, Síðast uppfært: 02.02.2012 07:31

Safnmynd.
Sjómenn eru að meðaltali nær þriðjungi eldri nú en þeir voru fyrir þremur áratugum.
Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Fiskifrétta. Þar kemur fram að sjómenn voru 29 ára að meðaltali árið 1982, tíu árum síðar voru þeir orðnir 32 ára að meðaltali og 2002 var meðalaldurinn kominn í 37 ár. Nú er meðal sjómaðurinn orðinn 41 árs, tólf árum eldri en sem nemur meðalaldri sjómanna fyrir þrjátíu árum.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







