Sjö íslensk danspör sett í bann

Íslandsmótinu í 5 og 5 dönsum sem átti að fara fram um helgina, hefur verið frestað, þar sem sjö íslensk danspör hafa verið dæmd í bann á vegum Alþjóða dansíþróttasambandsins, WDSF og öllum aðildarfélögum þess, þar á meðal Dansíþróttasambandi Íslands.
Íslensku danspörin sem um ræðir tóku þátt í keppnum í Bretlandi í haust, sem ekki eru viðurkennd af Alþjóða dansíþróttasambandinu. Íslensku pörin fengu 3-6 mánaða bönn frá keppnum á vegum sambandsins og aðildarfélaga. Sex af þessum bönnum renna út 17. febrúar en eitt gildir til 17. maí.
Formenn 7 dansíþróttafélaga sem starfa undir hatti DSÍ óskuðu eftir því að Íslandsmótinu um helgina yrði frestað og var fallist á það. Ekki er komin ný dagsetning á mótið, en búast má við því að hún verði sett eftir að banni flestra paranna lýkur.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








