Prenta frétt

Senda frétt Hlusta á frétt

Sjallanum lokað

Hinum sögufræga skemmtistað, Sjallanum á Akureyri, var lokað í dag að kröfu slökkviliðsstjórans á Akureyri. Tuttugu og fimm athugasemdir hafa verið gerðar við eldvarnir í húsinu, auk þess sem þar kom upp alvarlegt atvik á dansleik um síðustu helgi.

Þá varð þar slys þegar eldgleypir sem þar var að skemmta brenndist í andliti. Þegar sjúkraflutningamenn hugðust flytja manninn út um neyðarútgang kom í ljós að hurð í útganginum var lykillæst og hurð skrúfuð aftur.

Þorbjörn Haraldsson, slökkviliðsstjóri á Akureyri var þá boðaður á staðinn og við skoðun kom í ljós að neyðarútgöngum hússins var verulega ábótavant og brunaviðvörunarkerfi hafði slegið út. Öryggi gesta var því verulega ógnað. Eftir frekari skoðun á staðnum tilkynnti Þorbjörn eiganda Sjallans að staðnum yrði lokað. Eigendurnir höfðu andmælarétt þar til í dag, en höfðu þá ekki gert viðeigandi útbætur.

Í stöðuúttekt kom í ljós að eldvörnum var verulega ábótavant og eigendum staðarins í kjölfarið afhentur listi með 25 atriðum sem þeim ber að laga. Sjallanum verður hefur því verið lokað og hann verður ekki opnaður aftur fyrr en úrbótum hefur verið sinnt og það staðfest með úttekt.


 
        

frettir@ruv.is


Senda á Facebook

9. september 2010

Streymiþjónusta