Sjallanum breytt í hótel

Fyrirhugað er að breyta hinum sögufræga Sjalla á Akureyri í hótel. Skemmtanahald hófst í Sjallanum fyrir tæpum 50 árum.

Saga Sjallans er samofin sögu Akureyrar og langflestir Akureyringar hafa einhverntímann tjúttað í Sjallanum. Hann var í mörg ár miðstöð skemmtanahalds á Akureyri og fjöldi þekktra tónlistarmanna hefur í gegnum árin leikið þar á dansleikjum. Og enn eru haldnir stórdansleikir í Sjallanum þótt markhópurinn hafi vissulega breyst.

Sjallinn var opnaður árið 1963 og verður því 50 ára á næsta ári.

Hópur fjárfesta hefur gert tilboð í Sjallann og hyggjast breyta honum í hótel og miðast tilboðið við að húsið verði afhent fyrsta maí. Þetta er með fyrirvara um samþykki bæjaryfirvalda um breytta notkun og hafa teikningar verið lagðar fyrir skipulagsdeild Akureyrarbæjar. Þar er gert ráð fyrir að 59 herbergja hótel rúmist í húsinu án meiriháttar útlitsbreytinga en frekari áform miðast við byggð verði ein hæð ofan á Sjallann og 22 herbergjum þá bætt við. Vegfarendur sem rætt var við á Akureyri í dag voru ekki hrifnir af hugmyndinni um að breyta Sjallanum í hótel og sögðust flestir vilja hafa hann sem skemmtistað áfram.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Innlent, Norðurland

Tilkynna um bilaða upptöku