Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Flokkurinn fengi nú 4% minna en í janúar. 34% myndu kjósa Samfylkinguna eða einu prósentustigi meira en í síðustu könnun. Tæp 19% myndu kjósa Vinstri græna, 5% Framsóknarflokkinn, 3% Besta flokkinn og 2% Frjálslynda flokkinn.
11% sögðust mundu skila auðu. Samkvæmt þessu fengju Sjálfstæðismenn og Samfylking 6 borgarfulltrúa hvor og Vinstri grænir fengju 3.
Heildarúrtaksstærð var 6.968 af öllu landinu en þar af voru Reykvíkingar 2.552 og svarhlutfall var 67,1%.
frettir@ruv.is