Sigurður greiði hálfan milljarð

Sigurður Einarsson fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings þarf að greiða þrotabúi bankans tæplega hálfan milljarð króna vegna láns sem hann tók til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi, samkvæmt dómi Héraðsdóms. Þá var jafnframt staðfest kyrrsetning á einbýlishúsi á Seltjarnarnesi og sumarhúsi í Kjós.
Upphæðin er tíu prósent af fimm og hálfs milljarðs láni sem Sigurður tók til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi, en hann hafði samið um að persónuleg ábyrgð hans yrði ekki meiri.
Málið snýst um að þrotabúið höfðaði riftunarmál til að fella niður ákvörðun stjórnar Kaupþings frá því rétt fyrir fall bankans um að fella niður persónulegar ábyrgðir af lánum til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi. Einu veðin fyrir lánunum voru hlutabréfin sjálf. Dómurinn kom ekki á óvart, en Héraðsdómur hafði ákveðið að bíða með að dæmi í þessu máli þar til Hæstiréttur hafði dæmt starfsmann til að greiða þann hluta lánsins sem hann bar ábyrgð á. Héraðsdómur vísaði í þann dóm, sem taldi að það hefði verið gjöf að aflétta þessari ábyrgð og því hafi þrotabúið ekki brotið lög með því að rifta þeirri ákvörðun stjórnar Kaupþings. Sigurður tók alls fjögur lán í japönskum jenum. Í september, þegar ákveðið var að aflétta persónulegu ábyrgðunum, stóðu þau í um fimm og hálfum milljarði króna. Í lánasamningunum var kveðið á um að ábyrgð Sigurðar yrði aldrei meiri en sem næmi verðmæti hlutabréfanna auk þess sem hann væri persónulega ábyrgur fyrir tíu prósentum af fjárhæðinni. Það er sú fjárhæð sem Sigurður er dæmdur til að greiða nú. Hann greiðir því með öðrum orðum aðeins tíu prósent af þeirri skuld sem hann stofnaði til. Auk greiðslunnar staðfesti dómurinn kyrrsetningu á eignarhlut hans í einbýlishúsi á Seltjarnarnesi, jörð og sumarbústað í Kjósinni og tuttugu prósenta eignarhlut í einkahlutafélaginu Hvítsstöðum, sem er í eigu nokkurra fyrrverandi stjórnarmanna Kaupþings, en kyrrsetningin var gerð fyrir kröfunni sem Sigurður er nú dæmdur til að greiða.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













