Sextán hermenn felldir
Fyrst birt: 29.01.2012 10:41 GMT, Síðast uppfært: 29.01.2012 11:03 GMT

Mótmælt í Yabrud í Sýrlandi. Mynd: Nordic Photos/AFP
Í það minnsta sextán sýrlenskir hermenn féllu í tveimur árásum uppreisnarmanna í morgun.
Tíu hermenn féllu þegar ráðist var á bílalest hersins í norðvesturhluta landsins, að því er Sýrlenska eftirlitsstofnunin með mannréttindum greindi frá. Þá greindi sýrlenska fréttastofan SANA frá því að sex hermenn hefðu fallið þegar ráðist var á rútu hersins nærri höfuðborginni Damaskus. Harðir bardagar hafa geysað í og nærri höfuðborginni síðustu daga og segja andstæðingar stjórnvalda að tugir hafi fallið. Þeir segja að stjórnarherinn hafi beitt stórskotaliði gegn svæðum á haldi uppreisnarmanna fyrir austan og norðan höfuðborgina.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is







