Sextán hafernir á Vesturlandi
Fyrst birt: 18.01.2012 11:25, Síðast uppfært: 18.01.2012 11:25

Haförn. Mynd: hi.is
Tæplega 29 þúsund fuglar voru taldir á talningasvæðum á norðanverðu Snæfellsnesi um áramótin í árlegri talningu Náttúrurstofu Vesturlands og hafa ekki fleiri verið taldir á liðnum árum. Fuglarnir voru af 39 tegundum.
Fuglalífið var óvenju blómlegt vegna mikillar síldargengdar í Breiðafirði fjórða veturinn í röð. Á meðal þess sem mesta athygli vekur er gríðarlegur fjöldi máfa, súlna og annarra fiskiætna. Algengustu tegundirnar voru svartbakur, æðarfugl og hvítmáfur, en máfar, æður, súla og fýll voru samtals ríflega 80% af heildarfjölda fugla. Samtals sáust 16 hafernir, fleiri en nokkru sinni.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku








