Setja upp stálendurvinnslu

Ný stálendurvinnsla tekur til starfa á Grundartanga innan tíðar. Þeir sem standa að verkefninu segja að fyrirtækið sé umhverfisvænt og hafi mikla möguleika til stækkunar.
Unnið er að uppsetningu verksmiðjunnar, GMR endurvinnslu, þessa dagana. Þeim undirbúningi ætti að vera lokið í ágúst og verksmiðjan fær svo orku til framleiðslunnar um áramót. Stefnt er að því að hefja framleiðslu strax í upphafi næsta árs.
Framleiðslan felst í því að hreinsa stál sem fellur til hjá álverunum þannig að hægt verði að nýta það aftur innan þeirra. Svokallaðir straumteinar og tindaefni sem áður fyrr var flutt út verður nú flutt til GMR endurvinnslu á Grundartanga sem mun hreinsa efnið þannig að það verði nothæft í álframleiðslunni á ný.
Arthur Garðar Guðmundsson, einn þeirra sem standa að verkefninu, segir fyrirtækið í raun umhverfisvæna endurvinnslu.
Til að byrja með munu 20 ný störf skapast með framleiðslunni. Arthur segir fyrirtækið þó hafa mikla möguleika til stækkunar. Einungis þriðjungur af afkastagetu verksmiðjunnar verður nýttur til að byrja með.
GMR endurvinnsla er önnur tveggja nýfjárfestinga sem ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum fyrir helgi að fengju sérstaka ívilnun frá stjórnvöldum. Hitt verkefnið lýtur að fiskeldi á Reykjanesi. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu felst ívilnun stjórnvalda í ákveðnum þáttum tengdum skattaumhverfi þessara fyrirtækja á aðlögunartíma þeirra.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is














